Rafmennt

KNX ETS6
Innskráning og leyfi

Leiðbeiningar hvernig á að skrá sig inn í ETS6 forritið.

1

Opnaðu ETS6 forritið

Velkomin í KNX ETS6

Þegar þú opnar ETS6 í fyrsta skipti birtist þessi skjár. Smelltu á „Sign in with KNX ID" hnappinn til að hefja innskráningu.

ETS6 velkomsskjár
ETS6. Smelltu á „Sign in with KNX ID"
2

Bíddu eftir vafra

Sjálfvirk áframsending í vafra

ETS6 mun sjálfkrafa opna vafra til að skrá þig inn. Bíddu augnablik á meðan forritið vísar þér áfram. Ef vafrinn opnast ekki sjálfkrafa geturðu smellt á „here" tengilinn á skjánum.

Bíðskjár með QR kóða
Forritið sýnir QR-kóða og bíður eftir innskráningu í vafra
3

Skráðu þig inn á KNX vefsíðu

id.knx.org/login

Vafrinn opnar innskráningarsíðu KNX. Sláðu inn KNX notandanafn / netfang og lykilorð og smelltu svo á bláa „Sign In" hnappinn.

Þú notar notandanafn og lykilorð sem þú færð hjá kennara.
KNX innskráningarsíða
Innskráningarsíða KNX. Sláðu inn notandaupplýsingar
4

Staðfestu aðgang

Confirm access

Eftir innskráningu biður KNX þig um að staðfesta að ETS6 forritið megi nálgast aðganginn þinn. Smelltu á bláa „Confirm" hnappinn.

Staðfesting aðgangs
Staðfestu að ETS6 megi tengjast KNX aðganginum þínum
5

Innskráning tókst!

Signed In Successfully

Vafrinn sýnir staðfestingu: „Signed In Successfully". Þú getur nú lokað vafranum og farið aftur í ETS6 forritið.

Innskráning tókst
Innskráning tókst. Lokaðu vafranum og farðu aftur í ETS6
6

ETS6 tengist

Logging in...

ETS6 forritið sýnir nú „Logging in..." á meðan það vinnur úr innskráningunni. Bíddu augnablik... þetta tekur venjulega aðeins nokkrar sekúndur.

ETS6 tengist
ETS6 tengist. Bíddu á meðan forritið vinnur
7

Veldu rétt leyfi

ETS6 License — mikilvægt skref

Nú birtist listi yfir öll ETS6 Lite leyfi sem tengjast aðganginum þínum. Hvert leyfi hefur einstakt númer (t.d. 9000001174778).

Mikilvægt: Þú þarft að velja leyfið sem passar við þinn KNX búnað. Athugaðu upplýsingarnar sem þú hefur um þinn KNX búnað og veldu leyfið með samsvarandi númer. Ef þú ert ekki viss, athugaðu skjöl eða merkimiða á KNX búnaðinum eða talaðu við kennarann.

Skrollaðu í listanum ef þörf er á til að finna rétt leyfisnúmer. Smelltu á leyfið sem á við þinn búnað til að velja það. Valið leyfi verður auðkennt með bláum lit.

Leyfislisti
Listi yfir tiltæk leyfi
Fleiri leyfi
Skrollaðu til að sjá fleiri leyfi

Þegar þú hefur smellt á rétt leyfi birtist „Activate" hnappurinn neðst á skjánum. Smelltu á hann til að halda áfram.

Leyfi valið
Leyfi valið (blátt). Smelltu á „Activate"
8

Virkjaðu leyfið

License Storage

Að lokum þarftu að velja hvar leyfið verður geymt. Í þessu tilfelli er boðið upp á Cloud geymslu sem tengist þínu tölvunafni. Smelltu á Cloud valkostinn og síðan á „Activate".

Cloud leyfi er þægilegt vegna þess að það er ekki bundið við tiltekið tæki og hægt er að flytja það á milli tölva hvenær sem er.
Geymsla leyfis
Veldu Cloud geymslu og smelltu á „Activate" til að ljúka
🎉 Til hamingju! Þú ert nú skráð/ur inn og leyfið er virkt. Þú getur byrjað að nota ETS6 til að stilla og forrita KNX búnaðinn þinn.